Skilmálar
Almennt
Hársnyrtistofan Cleó áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga ásamt því að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunnar eiga sér stað.
Pantanir
Hársnyrtistofan Cleó tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti.
Greiðslumöguleikar
Hársnyrtistofan Cleó býður upp á að greiða með kreditkorti og debetkorti í gegnum örugga greiðslusíðu frá Valitor.
Afhending vöru
Vörur eru sendar með Íslandspósti næsta virka dag. Einnig er hægt að sækja pantanir á Hársnyrtistofuna Cleó á Garðatorgi 3 opnunartíma. Opið virka daga frá kl. 9-17. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts gilda um afhendingu vöru frá Póstinum. Skilmálar Póstsins eru aðgengilegir á vefsíðu fyrirtækisins. Hársnyrtistofan Cleó ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi Póstsins. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Hársnyrtistofunni Cleó og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.
Sendingarkostnaður
Enginn sendingarkostnaður er hjá Hársnyrtistofunni Cleó.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í fullkomnu lagi og í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja.
Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Hársnyrtistofuna Cleó með spurningar.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavini boðin ný vara í staðinn og við greiðum allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Trúnaður
Hársnyrtistofan Cleó heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað. Skilmálar þessir gilda frá 1. Maí 2023.
Hársnyrtistofan Cleó
Garðatorg 3
210 Garðabær
Sími: 565-6465
Opnunartími: 9-17 á virkum dögum.
Sonja Rut Alexandersdóttir
Sími: 565-6465
Kt: 240586-2829
VSK númer: 123699